Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
15.2.2008 | 22:54
Hver er réttur barna fráskilinna foreldra?
Hvert er hlutverk barnaverndarnefndar er það ekki að gæta réttar barnsins í hvívetna og að ekki sé á því brotið.
Það er sorglegt hvernig börnin lenda á milli foreldra sem skilja .
Ég vil skora á alla sem skilja að hugsa um það hvað er best fyrir blessuð börnin og reyna að leysa málin í sátt og samlyndi svo börnin hljóti ekki skaða af. Það er vissulega nógu erfitt fyrir þau að sjá á eftir öðru foreldrinu flytja burt af heimilinu. Þó þau lendi ekki í einhverri orrahríð á milli pabba og mömmu líka.
Það er mikil nauðsyn að velja góða og hæfa einstaklinga í barnaverndarnefndir.
Fólk sem ber virðingu fyrir börnum og ber hag þeirra fyrir brjósti í hvívetna.
Fólk sem leggur sig í líma til að setja sig inn í mál foreldrana og sætta þeirra sjónarmið og leysa málin öllum til hagsbóta
21.5.2007 | 23:52
Kærleiksstjórnin.
14.5.2007 | 19:41
Þakkir til allra.
Ágætu flokkssystkini sem voru með á framboðslista F F kærar þakkir fyrir samstarfið. Allir sem gáfu okkur atkvæði sitt á kjördag og studdu okkur og okkar góða málstað í gegnum súrt og sætt hafið kæra þökk fyrir.
Þetta var lærdómríkt og maður sá ýmislegt í nýju ljósi. Það er ansi margt sem betur má fara í þjóðfélaginu og þarf að taka á, en stór spurning hvort það verður gert á þessu kjörtímabili.
Allir sem gáfu sér tíma í að spjalla þakka ég skemmtilega viðkynningu það var gaman að kynnast ykkur. Einnig þakka ég fyrir góðar móttökur á fjölmörgum vinnustöðum og gott og fróðlegt spjall þar.
Við þurfum að standa saman og eiga góða samvinnu það er það sem skiftir máli til að ná árangri.
Kær kveðja Brynja Hlíf.
9.5.2007 | 21:55
Bændur og ríkisstyrkir.
Landbúnaðarstefna stjórnvalda er að ganga að landbúnaðinum dauðum. Hún kemur í veg fyrir eðlilega endurnýjun í greininni vegna þess að það er svo dýrt að kaupa sér jörð og framleiðslurétt, að ungt fólk leggur ekki í það. Það er vonlaust fyrir þann sem ekki kaupir sér rétt að fara út í mjólkurframleiðslu eða lambakjöt vegna þess að þeir hafa yfirburðastöðu sem eru fyrir í greininni og fá himinháa styrki úr ríkissjóði.
Maður sem er með 300.000 lítra mjólkurrétt fær td 12.000.000 úr ríkissjóði árlega er það ekki dæmalaust með svo stórt bú . Það er ekki að sjá að hagkvæmnin sé mikil ef þetta stóra bú getur ekki rekið sig á markaðinum, eins og td svínabændur, nautakjötsbændur, alifuglabændur,hrossabændur,eggjabændur. Þetta er allt án ríkisstyrkja og þarf að lúta lögmáli markaðarsins. Eiga bændur ekki að búa allir við það sama, þarna er mikið misrétti í gangi og kemur óneitalega spánskt fyrir sjónir á þessum jafnréttistímum þegar allir krefjast sömulauna fyrir sömu störf.
Hvað með annan atvinnurekstur ekki býr hann við ríkisstyrki.
Stjórnunin í landbúnaðinum hefur í 30 ár alið á misrétti í bændastétt og er löngu tímabært að aflétta þessu helsi af bændum svo hver og einn fái notið sín á eigin forsemdum og án framleiðslustyrkja. Við hjá Frjálslyndum viljum frekar taka upp byggðastyrki sem tengdust þá framkvæmdum á jörðinni, fjöldskyldustærð og viðkomandi yrði að búa á jörðinni og þannig styrkur kæmi bara þeirri jörð til góða og ekki væri hægt að framselja hann. Allir sætu við sama borð. Bændur sem aðrir atvinnurekendur eiga að hafa aðgang að fjármagni á góðum kjörum.
Þeir sem kynnu að reka bú sín af hagkvæmi mundu lifa en hinir mundu heltast úr lestinni það er það eina rétta, þannig er það í öðrum atvinnuresktri.
Ég hef reynslu af að búa í frjálsum búskap fyrir tíma kvótastýringar og líka í hafta búskap þar sem þeir sem voru ríkisstyrktir gátu boðið niður úr öllu valdi það sem ég framleiddi, það er skammarlegt kerfi og á ekki að líðast.
Ég vil frelsi og jafnrétti í greininni svo sveitir landsins blómstri á ný og ungt og dugandi fólk geti hafið búskap á jafnréttisgrunni.
9.5.2007 | 00:13
Aldraðir og réttindi þeirra.
Óréttlæti eins og það að lífeyrisgeiðslur skerði ellilífeyri sem er lögboðinn eftir 67 ára aldur á ekki að líðast. Þegar fólk var skyldað til að greiða ílífeyrissjóð á sínum tíma, þá átti það að vera viðbót við ellilaunin en ekki skerðing eins og raunin er í dag. Auk þess sem verið er að skattleggja lífeyrisgreiðslur tvisvar hjá fjölda fólks og er það hreinn og klár þjófnaður.
Auka séreignalífeyrisjóðurinn á algjörlega að vera fyrir utan þessar greiðslur og ekki bera hærri skatt en 10%. Fólk á að geta ráðstafað honum eins og það vill og ekki að vera með einhverja skömmtunastefnu á honum. Hann er eign þess sem safnar og á hinn sami að geta tekið hann út þegar honum þóknast.
Afnema tekjutengingu við maka.
Frítekjumark 1.000.000 án skerðingar bóta, enda vandséð að það sé ekki til bóta fyrir þjóðfélagið að fólk taki þátt í að skapa verðmæti fyrir land og lýð.
Auka hemaþjónustu við aldraða þannig að þeir geti haft val um það að vera heima eða á stofnun.
Koma á kerfi ummönnunarbóta til aðstandenda og eða vina sem annast aldraða.
6.5.2007 | 23:00
Börnin okkar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.5.2007 | 23:07
Spilling ríkisstjórnarinnar.
19.4.2007 | 22:44
Fundur Alþjóðastofu á Akureyri 18.04.2007. Um innflytjendamál.
Ég sat þennann fund sem frambjóðandi Frjálslyndaflokksins og átti hann að fjalla um innflytjendamál, en það var tekinn dágóður tími til að rakka niður FF og frambjóðendur hans eins og Jón Magnússon og Magnús Þór Hafsteinsson sem mér fannst að hefði átt að vera fyrir neðan virðingu lektorana skólagegnu sem voru að láta ljós sitt skína á ósmekklegan hátt að þeim fjarstöddum. Þannig að þeir gátu ekki borið hönd yfir höfuð sér. Svona smekkleysa ber ekki vott um mikla menntun hjá þeim því sagt er að menntun eyði fordómum. Plataði ég einn þeirra með því að segja við hann að ég ætlaði að þakka honum fyrir málefnalega umræðu um flokkinn minn og kokgleypti hann það og sagðist nú ekki hafa verið að hæla flokknum hann hélt greinilega að ég hefði ekki skilið ómerkilegheitin í honum. Þessi sami setti sig á háan hest og taldi að þeir sem ekki skrifuðu rétt og hefðu ekki kommur og punkta í lagi hefðu ekkert inn á bloggið að gera. Ef þetta telst ekki að líta niður á fólk þá veit ég ekki hvað það er. En ég segi látið ekki svona hrokagikki hræða ykkur frá því að blogga þeir eiga engann rétt um fram aðra að gera það.
Það kom fram þarna að það eru 120 þjóðarbrot á Íslandi og ansi margt sem þarf að bæta til að hægt sé að segja að hlutirnir séu í lagi. Svo sem ónóg íslenskukennsla. Nýbúi taldi sig ekki vera tekinn með í félagslífið í skólanum, átti erfitt með að hjálpa barninu með heimanám. Hinsvegar var ekki verið að fjalla um það sem máli skipti fyrir fólkið svo sem húsnæðismál. Börn vantar enn kennitölur , kennslan engan veginn viðunandi fyrir börnin í skólunum, nýbúar að vinna á elliheimilum mállausir, sem er óvirðing bæði við þá og gamla fólkið að geta ekki haft eðlileg samskipti svo eitthvað sé talið .
Svo var alveg frábært að það var verið að hnýta í okkur að við segðum "þetta fólk", en svo henti það bæði konuna sem stóð fyrir þessu að segja "þetta fólk" og líka aðra konu sem gerði ritgerð um flóttafólk að hún sagði ítrekað "þetta fólk" og "þessir krakkar" um börnin þeirra en mér dettur samt ekki í hug að það hafi átt að vera í niðrandi merkingu, ég er ekki svo öfgafull.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
7.4.2007 | 12:59
Tennur, augu og drykkjusýki.
Ég hef of velt því fyrir mér hvers þeir eiga að gjalda, sem hafa slæmar tennur og sjá illa. Oft getur það meira segja farið saman, að það hrjái sama mann og getur það því verið umtalsverður kostnaður fyrir viðkomandi, en er ekki inni í heilbrigðiskerfinu og finnst mér löngu tímabært að fara að taka það inn. Þetta tvennt tel ég mjög svo nauðsynlegt að hafa í lagi fyrir almenna vellíðan. Það hefur verið gerð augnaðgerð á fjölda manns með mjög góðum árangri, en hún kostar mikinn pening og þeir sem minnst hafa á milli handanna eiga ekki kost á því að komast í hana af fjárhagsástæðum sem er ekki sanngjarnt þessu þarf að breyta sem fyrst. ÞAÐ ERU MANNRÉTTINDI.
Á sama tíma er búið að reka meðferðarheimili fyrir drykkjusjúka árum saman, sem er af hinu góða í sjálfu sér, nema mér finnst það ekki ásættanlegt að menn geti komið þar endalaust og verið haldið uppi af skattborgurunum, það tel ég vera óstjórn og ekki til þess fallið að ná árangri. Betra væri að það væri ekki hægt að komast þarna inn nema tvisvar, því að þá yrðir viðkomandi að taka á sínum málum af alvöru, en gerir það ekki með svona reglum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.4.2007 | 22:39
Íslendingar og nýbúar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)